Það fraus ekki í nótt ...úpps

Gleðilegt sumar allirKissing Þetta sumar verður hrikalega skemmtilegt á alla vegu hef ég grun umSmile en úpps... það fraus ekki saman vetur og sumar í nótt sem þýðir við þurfum að hlaupa mikið í regngallanum í sumar eða hvað?? Ef hjátrúnni er að trúa a.m.k.... Reyndar er allt skárra en vindurinn þegar kemur að útihlaupum. Arrrrrg...

Hlýnun jarðar er þó eitthvað sem við höfum orðið vör við hérna sem njótum íslenska sumarsins á síðustu árum. Og eins kjánalegt og það er þá verður að viðurkennast að hlýrra veður væri ákjósanlegt hér á þessu frábæra landi. En nú segja fræðimenn að þessi hlýnun muni mest skila sér í aukinni úrkomu hérna á norðurhveli jarðar á næstu árum, frekar mikil vonbrigði það, æi vonandi hafa þeir rangt fyrir sérErrm. Var kannski barnalegt að trúa því að þessi sorglega þróun myndi hafa eitthvað jákvætt í för með sér, ja svona tímabundið....má alltaf reyna... Ég trúi alla veganna á sólinaWink er nauðsynleg fyrir útilegurnar.

En njótið dagsins öll, tilvalið að nota frídaginn í hjólatúr, fjallgöngu eða einhverja smart hreyfingu með fjölskyldunni.

Bæjó, Addý

And remember, no matter where you go, there you are.
Confucius

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband