Viðtöl - settu sjálfan þig í fyrsta sæti

Nú er ég að byrja að þjálfa á fullu eftir verslunarmannahelgi og margir að spyrja mig um það. Ótrúlega mikið af fólki að leita sér að þjálfara fyrir haustiðSmile sem er mjög jákvætt, fólk greinilega að setja sjálft sig í fyrsta sæti í "kreppunni". Þeir reyndustu í líkamsræktarbransanum segja að það sé einmitt þannig að þegar niðursveifla sé í þjóðfélaginu sé fólk oft duglegra að mæta í ræktina og einbeita sér að sér og sínum.
En mig langar að benda fólki - áhugasömum á að ég get tekið fólk í viðtöl til að leiðbeina með lífstíl, mataræði, þjálfun, sett upp prógramm, mælingar, markmiðasetningu o.s.frv. Þá er hægt að hittast nokkrum sinnum yfir önnina og fylgja markmiðunum eftir. Þetta hefur borið góðan árangur hjá mörgumSmile 

Verið í bandi ef þið hafið áhuga á þessu.
Kv. Arndís
s. 863-7497


Karrísósan í gær

1 laukur
1-2 msk karrý
1 msk túrmerik
1 msk tómatmauk
1-2 tsk grænmetiskraftur lífrænn
1 dós kókosmjólk (eða rjómi)
smá vatn

Mýkja laukin í potti, bæta karrí, túrmerik, tómatmauki og krafti útí ásamt ca. hálfum bolla af vatni, hræra vel. Hræra svo kókosmjólkinni útí, ekki láta sjóða, heldur bara hita. Ofsa góð með kjúklingnum fyrir krakkana(já og okkur stóru krakkana líkaWink)

Góða skemmtun í útlegunniSmile


Komin heim

Ítalía var algjört sukksessSmileVið höfðum það yndislegt í landi rauðvíns og mozzarellaosta 2 fjölskyldur frá landinu kalda. Fyrst í eina viku í Toscana héraði, umvafin vínekrum og ótrúlegri fegurð og svo í eina viku við Gardavatn, nánar tiltekið í bænum Desenzano. Fengum frábært veður allan tímann og kynntumst Ítalíu á nýjan hátt. Svo auðvitað Flórens sem er fallegasta borg sem ég hef komið til.

Hér koma nokkrar myndir:

"Kastalinn"Wink

hus

Ærslabelgirnir og vinirnir: Bjarki, Matti og Egill OrriWink

vinir1

og auðvitað prinsessan Margrét Íris við hið undurfagra Gardavatniris garda

með spékoppinn að taka sporiðSmile
irisdansar

úff útsýnið...algjör paradís
DSCN0350

Næsti bær við okkur í húsinu, Greve í Chianti, þarna kunna þeir sko að gera rauðvíninTounge
DSCN0473

Og svo systkinin á góðri stund í Munchen
systkini

Annars er ég ennþá í fríi og flestum stundum eytt í sveitasælunni uppí bústað og í tjaldinu. Skelltum okkur svo á landsmót hestamanna um síðustu helgi og það var algjör snilld (mun ekki birta myndir þaðanWink).

Þjálfun fyrir hálfmaraþon ennþá á fullu í gangi auðvitaðSmile er að hlaupa svona 30-40 km á viku...stefni á að bæta tímann frá því í fyrra.

Hafið það yndislegt öllSmile


Brauðhúsið

Brauðhúsið er bakarí í Grímsbæ á Bústaðavegi sem bakar mikið ljúffeng brauð. Þetta er lífrænt bakarí þar sem notast er við lífrænt hráefni, brauðin eru einnig laus við hvítt hveiti og öll aukaefni. Síðan eru þetta bara ofsa ofsa góð brauð. Þau geymast reyndar ekki lengi (enda frekar undarlegt hvað samlokubrauðin úr bónus haldast lengi mjúk...hmmmmFrown) en þá er best að geyma þau niðursneidd í frysti. Nældi með mér einu gulrótarbrauði á Landsmótið um helgina og það vakti mikla lukkuLoL

Kveðjur, Addý


Hótel-æfingaprógramm

Já okei þá, ég ætla ekki alveg að eyðileggja fríið fyrir ykkur en þið sem viljið vera fersk og byrja daginn á nokkrum æfingum í fríinu, þá er ég búin að setja saman smá prógramm sem þið getið notað í hvaða landi sem er og hvaða hótelherbergi sem erWink. Allt sem þarf er viljinn og gleðinSmile já og skeiðklukka og sippubandCool Hver æfing er gerð í 1 mínútu og hafið 1 mínútu í hvíld á milli æfingar. Þetta ætti að taka ykkur ca 20 mínútur. Hafið það gott í sumarleyfinu.

Dagur 1:

Venjulegar armbeygjur í 1 mínútu (setja skó undir bringuna til að vita hversu langt niður er gott að fara)

Dips fyrir þríhöfða í 1 mínútu á stól eða lágu borði

Armbeygjur í 1 mínútu með tær uppá sófa eða borði (hafa skó undir bringu)

Magaæfingar í 1 mínútu (hjóla með fótum og olnbogi á móti fæti)
Magaæfingar í 1 mínútu (hendur undir rass og láta beinar fætur síga til jörðu og aftur upp)
Endurtaka allt prógrammið 2-3 sinnum. 
Dagur 2 :
Framstig í 1 mínútu. Hægri og vinstri til skiptis.
Hnébeygja í 1 mínútu. Hér gott að halda á einhverju þungu t.d. lítilli ferðatösku, uppvið bringuna til að bæta við smá þyngd.
Uppstig í 1 mínútu. Stígið uppá (lágt borð eða stól) í hægri fót og lyftið vinstra hné eins langt og hægt er að bringu, stígið niður og skiptið um fót.
Hliðarhopp fyrir kálfa í 1 mínútu. Brjótið handklæði í tvennt langsum, leggið það á gólfið og hoppið yfir handklæðið til hægri og vinstri. Færið hoppin fram og aftur eftir handklæðinu.Plankinn í 1 mínútu. Stöðuæfing þar sem eigin líkamsþyngd er haldið uppi á tám og olnboga/framhandlegg.
Endurtaka allt prógrammið 2-3 sinnum. 
Dagur 3:
Armbeygjustaða og sparka hægri og vinstri fram undir bringu í 1 mínútu. (Hermanna-hopp)
Mjóbak og axlir í 1 mínútu. Leggist á magann, lyftið fótum og bringu aðeins frá gólfi. Sveiflið svo handleggjum frá mjöðmum og yfir höfuð fram og tilbaka í 1 mínútu.(Svipuð hreyfing og þegar maður gerir engil í snjó, nema hér er legið á maganum).
Magaæfingar í 1 mínútu. Leggist á bakið og setjið fætur í 90 gráður, lyftið herðablöðum frá gólfum og setjið olnboga að hné, hægri og vinstri til skiptis.
Sipp í 1 mínútu. Ef þið eruð ekki með sippuband er auðveldlega hægt að sippa án þess:o)
Magaæfingar í 1 mínútu. Legið á bakinu, fætur á gólfi og venjulegar sit-ups.
Endurtaka allt prógrammið 2-3 sinnum.

Ítalía

Tuscany Nú er komið að sumarfríi og styttist í Ítalíuferð, blogg í smá pásu á meðan. Kem svo sterk inn þegar líður að maraþoni í ágúst. Verður góð tilbreyting að hlaupa um hóla og hæðir í Toscana héraði á ÍtalíuWink  

Sólarhyllingin

Góðan daginn kæra fólk og gleðilegan miðvikudag. Hér er sýnishorn af sólarhyllingunni (e. sun salutation). Þessi rútína er til í nokkrum útgáfum og er oft notuð í upphitun í jóga, þá gerð nokkrum sinnum í röð.


Eigum við að gera smá jóga saman

Orðið Yoga á sér uppruna í fornmáli Indverja, Sanskrit, og þýðir á ensku "union" og er táknrænt fyrir sameiningu líkama, huga og anda. Reyndar á orðið Asana betur við um það sem við köllum yoga eða jóga í daglegu tali en Asana kemur líka úr Sanskrit og þýðir að framkvæma líkamlegar stöður. Ástundun jóga hefur aukist verulega undanfarin ár, hef reyndar enga tölfræði um það...veit bara suma svona hlutiCool, en margir halda að jóga snúist alfarið um teygjur og það að vera liðugur. Þó svo það sé að vissu leyti rétt snýst jóga í kjarnann um það að skapa jafnvægi í líkamanum í gegnum styrktar- og liðleikaæfingar. Þetta er gert með því að framkvæma þessar jógastöður/stellingar sem hafa mikla líkamlega ávinninga. Stöðurnar er síðan hægt að gera með ákveðnum hraða í ákveðinni röð og búa þannig til hita í líkamanum en það ferli er kallað vinyasa yoga. Í vinyasa yoga er einnig lagt mikið uppúr samræmi öndunar og líkamshreyfinga. Önnur áhersla er svo að gera stöðurnar hægt og leggja meira uppúr því að ná fram eins réttri/fullkomnri stöðu og hægt er til að bæta líkamsstöðu m.a.

Hér koma mjög stuttar lýsingar á helstu jógaheitum. (Auðvitað fer þetta svo alltaf eftir kennara og áherslum á hverjum og einum staðSmile)

Hatha yoga:
Ef Hatha er notað um jógatíma er vanalega átt við tíma sem er fremur almennur og gæti hentað byrjendum ágætlega.

Vinyasa yoga:
Eins og áður sagði er Vinyasa ferlið þegar æfingar eru gerðar með nokkrum hraða til að hita líkamann, öndunaræfingar gerðar samhliða og svo í lok tímans eru gerðar góðar og djúpar teygjustöður.

Ashtanga eða Power yoga:
Ashtanga jóga er það jóga sem er mest líkamlega krefjandi(Madonna t.d. þekkt fyrir að stunda það), þ.e. styrktarlega séð.  Æfingarnar eða stöðurnar eru gerðar í ákveðinni röð með krefjandi flæði/hraða. Power jóga tímar eru yfirleitt undir áhrifum af Ashtanga jóga.

Kundalini:
Mikil áhersla samræmi æfinga og öndunar með fókus á orkujöfnun.

Bikram/Hot Yoga:
Æfingar gerðar við hátt hitastig um 30 gráður og yfir til að losa um vöðvaspennu og auka svitamyndun. Talið mjög hreinsandiWink.(þyrfti smá svona núna..hehehe)

Þetta er svona algengasta jógað, það eru þó til mun fleiri tegundir ef þið viljið kynna ykkur betur.

Allir geta stundað jóga og rannsóknir hafa sýnt fram á mikinn ávinning fyrir t.d. fólk á besta aldri til að byrja að stunda jóga.

Mín jógareynsla er ekki mikil en mig langar til að vera duglegri að stunda jógað með hinni þjálfuninni.  Ég fór á meðgöngujóganámskeið með bæði krúttin mín þegar ég var ólétt og mæli ég með henni Auði Bjarnadóttur í Lótus jógasetrinu ef þið eruð í slíkum pælingum. Síðan er hann Billi í World Class frábær líka. Ætla að kíkja í tíma hjá honum á föstudaginn - Power Yoga og segi ykkur svo hvernig gekk. Annars hvet ég ykkur eindregið til að prófa sjálf jógaSmile

Kv. Addý


Kúluvöðvar

This is what happens when you go too much to the gym....???

2926


Vonbrigði dagsins....;)

Í tilefni af kvóti gærdagsins um það að prófa nýjungar þá verð ég að fá að blása út um eitt. Undirrituð hefur alltaf verið þekkt fyrir íhaldssemi í hinum ýmsu málefnum og þar á meðal mat, þori aldrei að prófa neitt nýtt. Borðaði t.d. eiginlega bara cherrios á uppvaxtarárunum...heheheh. Er nú reyndar búin að þroskast slatta með þetta, samt ekki svo mjög, en reyni og finnst mikilvægt að vera opin fyrir nýjungum svona almennt séð. En það gerðist dálítið merkilegt í dag....erfiðar breytingar......hehehe... Ég fór á Maður lifandi í hádeginu, eins og svo oft áður(borða sko dálítið oft þarTounge), og viti menn, það er nýr kokkur mættur á staðinn. Og þið verðið að fyrirgefa mér en þvílík vonbrigði, elskulegi salatbarinn minn var langt undir væntingum. Og ég er hryllilega matsár og fór bara í fýlu - eða svona næstum þvíCool. Vil fá gamla kokkinn aftur, plís!

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband