Hvað gæti verið að koma í veg fyrir að þú léttist?
17.3.2008 | 20:23
1. Sleppir morgunmat. Morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins og rannsóknir sýna að þeir sem borða morgunmat hafa lægra BMI(Body mass index-hlutfall hæðar og þyngdar).
2. Of stórir skammtar. Hæfilegur skammtur þýðir að svengdin er farin að segja til sín 3 klst. eftir máltíð.
3. Kvöldsnarlið. Best er að borða ekkert eftir kvöldmat, ef eitthvað þá einn ávöxt og munið eftir vatninu.
4. Of lítill svefn. Hvíldin er nauðsynleg því meðan á henni stendur eiga sér stað mjög mikilvæg efnaskipti líkamans.
5. Of mikið af fituskertum/sykurskertum/unnum matvörum. Aukaefni eru óvinurinn. Hreint mataræði muniði, beint af akrinum;o)
6. Neikvæðni og mótþrói. Hugurinn ber þig alla leið.
7. Nei það er ekki nóg að brenna bara. Styrktaræfingar eru grunnurinn, þá brennir líkaminn líka meira á brennsluæfingunni.
8. Áfengið. Já það er rétt, alkóhól er mjög hitaeiningaríkt.
Gangi ykkur vel,
Addý
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.