Heitt sítrónuvatn

Eitt lítið skref að bættum lífstíl er að byrja hvern dag á því að fá sér heitt vatn með sítrónu. Heita vatnið vekur kerfið á jákvæðan hátt og örvar, en rannsóknir sýna að sítrónusafi á tóman maga örvar efnaskipti sem hjálpa lifur við niðurbrot á fitu yfir daginn. Vildi bara deila þessu með ykkur af því þið eruð svo æðisleg og duglegWink

Svo er auðvitað um að gera að skipta út kaffinu og drekka meira heitt vatn og te.

Góða helgi, Addý 


Múltíþjálfun - ný þjónusta

Má bjóða þér:

Einfaldara líf
Betra skipulag 
Aðstoð við eldamennskuna
Ráðgjöf varðandi lífstílinn
Ráðgjöf varðandi matarinnkaup
Æfingaprógramm í mismunandi umhverfi (í æfingastöð eða bara heima)
Hlaupaprógramm/hlaupafélaga
Fjallgöngur
osfrv.

Þetta eru nokkur dæmi um það sem er innifalið í nýju þjálfuninni sem ég kýs að kalla Múltíþjálfun. Innifalið í henni er persónulegri og fjölbreyttari þjónusta en gengur og gerist í almennri einkaþjálfun. Markmið þjónustunnar er að finna fjölbreyttar leiðir fyrir einstaklinga til að bæta lífstíl sinn og tileinka sér heilbrigðari venjur. Þjónustan getur þá færst út fyrir veggi æfingastöðvarinnar og innifalið allt frá því að fara út að hlaupa saman, ganga á Esjuna, aðstoða við matarinnkaup og/eða koma heim í eldhús og ráðleggja við eldamennskuna. Sem sagt sérsniðnar lausnir fyrir einstaklinga.

Ef þið hafið áhuga, hafið samband arndis@ru.is eða í síma 863-7497.

Kveðja, Arndís


Einkaþjálfarinn mælir með...

Ef þú vilt bæta mataræðið og koma reglu á blóðsykurinn er um að gera að venja sig á hafa margar smáar máltíðir yfir daginn.  Undirstaðan er 3 máltíðir, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur en þess á milli er gott að narta í heilsusamlega bita ca. 2-3 yfir daginn. Ef tíminn milli máltíða er of langur og við orðin of svöng verður það frekar til þess að við föllum í freistingar og/eða borðum alltof mikið. Hér eru nokkrar hugmyndir að millimálssnarliSmile

1. Drekka vel af vatni allan daginn, hafa vatnsflösku á skrifborðinu eða við hendina. Nægt vatn flýtir fyrir efnaskiptum og auðveldar líkamanum við losun á úrgangsefnum.

2. Te, veljið frekar ávaxtate eða grænt te. Fullt til að mjög góðu tei, t.d. frá Yogi tea. Mitt uppáhald frá þeim er Detox og Sweet chilli. Á kvöldin þegar sætindaþörfin er sterk hja mörgum er te oft frábær kosturWink

3. Ávextir: mæli með eplum og perum. Epli eru mjög hreinsandi. Hvers kyns ávextir eru reyndar góðir. Prófið líka að frysta ferskan ananas eða vínber, eins og sælgæti. Oft bý ég mér líka til ávaxtakrap í mixernum, þá nota ég frosin jarðarber, vínber, 1/2 frosinn banana og melónu - mixa saman með smá klaka og blanda 1/2 til 1 skeið af vanillupróteini út í það. Nota bara prótein frá EAS.

4. Grænmeti: gulrætur, paprikur, agúrka, tómatar osfrv. Ferskir grænmetissafar eru líka meinhollir. Gulrótasafi blandaður með eplasafa eða eitthvað slíkt. Svo auðvitað hveitigras-skotin eins og fást í Heilsuhúsinu eða Maður lifandi. Græn fæða afeitrar líkamann og vegur uppá móti hvers kyns óhollustu sem við látum ofan í okkur.

5. Burger hrökkbrauð með kjúklingaskinku eða kotasælu. Ef ykkur vantar bragð með kotasælunni þá mæli ég með sultunni frá St. Dalfour, hún er sykurlaus, nota samt lítið af sultu. Eða stundum set ég bara smá grænt pestó ofaná kotasæluna, mjög ljúffengtWink 

6. Aðrar hugmyndir eru: harðfiskur, Larabar (appelsínugult er best), túnfisksalat frá yndisauka (próteinríkt og fitusnautt) og fl.

 


Enn um menntun

Núverandi menntakerfi er uþb. 100 ára gamalt, bæði stuttur og langur tími eftir því í hvaða samhengi við lítum á það. 

Getum við lagt meiri áherslu á sköpun og frjóa hugsun í menntakerfinu og erum við steypa alla í sama formið? Hvernig er hægt að halda áfram að þróast ef allir eiga að hugsa eins?

Ef þið eruð áhugasöm um samfélagið og menntastefnur, endilega kíkið á þennan skemmtilega fyrirlestur:

http://www.ted.com/index.php/talks/ken_robinson_says_schools_kill_creativity.html

 

 


Tími og virði menntunar

Menntun er grundvöllur siðmenntaðs þjóðfélags eins og okkar en síðustu mánuðir hafa fengið mig til að hugsa mikið um þann tíma sem við eyðum af ævi okkar í skóla - sem hefur lengst mjög síðustu áratugi. Getum við nýtt þennan tíma betur og getur verið að við þurfum að finna nýjar og betri leiðir í menntakerfinu til að skila samfélaginu hæfari einstaklingum.  Eru skólakerfi hins vestræna heims of einhæf og kerfisbundin....ég er bara að pæla.... maðurinn hefur þann furðulega eiginleika að trúa í einfeldni sinni samtíma sannleika eins og að jörðin sé flöt eða að kók sé magalyf eða að lánastarfssemi geti verið aðalgrein í atvinnuvegi og undirstöðum þjóðfélags. Við trúum því sem að okkur er haft.  

Samkvæmt nýjustu tölum eru tæplega 50 þús framhaldsskóla- og háskólanemendur  á Íslandi í dag. Hvað finnst ykkur um þann fjölda? Það er auðvitað frábært að við búum við slíkan munað að geta menntað okkur, en við þurfum að nýta tímann vel og hætta aldrei að líta gagnrýnum augum á hlutina.

Hér er myndbrot um svipaðar pælingar:


Zazie Totem

Dáldið góð.


Sunnudagskjúlli

Ekkert betra en góður sunnudagskjúlli og hrísgrjónTounge 

1 heill kjúklingur
1 bolli tómatsósa(frá Sollu) - það er ekkert tómatsósubragð af þessum rétt:)
3 kúfaðar msk karrý (milt ef börn eiga að borða)
slatti svartur pipar
1 ferna af matreiðslurjóma(hægt að nota kókosmjólk)

Skera niður kjúklingin í fat, blanda saman tómatsósu, karrý og pipar og smyrja á kjúkling. Baka í uþb. 30 mínútur. Hella síðan rjómanum yfir og baka aftur í uþb. 30 mín.


Nýtt hugarfar á nýjum tímum

Það er eflaust rétt um mörg okkar að við höfum notað peninga og veraldleg gæði til að meta árangur og gæði lífs okkar nú til dags. Í mismiklu mæli en við höfum öll fundið fyrir því að ákveðið hugarfar sem einkenndi þjóðfélag okkar síðustu ár er ekki það heilbrigðasta. Ný-yfirstaðnir atburðir í vestrænu samfélagi hafa fengið okkur til að hugsa og það er einungis eitt sem við getum öll gert og það er að læra af þessu öllu saman. Ég gæti notað þessa blogg-síðu til pólitískrar umræðu, trúiði mér, hef mjög sterkar skoðanir á hlutunum og set mig vel inní mál en ég tel líka mikilvægt að einstaklingar styrkji sig til að styrkja heildina og vil því frekar nota þennan vettvang til að fjalla um sjálfstyrkingu. Hvað getum við gert til að missa ekki sjálfstraustið og komast yfir þá reiði og sorg sem við þurfum mörg að glíma við á þessum tímum. Hér koma nokkur atriði sem ég tel mikilvægt að hafa í huga:

1. Tileinkum okkur þakklæti. Við höfum það ótrúlega gott hér á Íslandi og flest okkar hafa mjög margt til að vera þakklát fyrir. Ef við tölum bara um efnislega þætti, þá má nefna sem dæmi að ef þú er ekki með banvænan sjúkdóm, hefur fengið góða máltíð í dag og átt þak yfir höfuðið, þá erum við að tala um að þú hefur það betra en 70% af umheiminum. Og...ef þú ert að lesa þetta úr tölvu heima hjá þér, þá hefur þú það betra en 90% af öllu fólki á þessari jörð.

2. Hvenær er nóg NÓG? Setjum okkur mörk með efnislega hluti, sá sem vill alltaf meira og meira verður aldrei ánægður með það sem hann hefur.

3. Tileinkum okkur að gefa og njóta hluta sem of oft eru taldir sjálfsagðir. Það er alveg ljóst að peningar og auðæfi tapast. En bros, kærleikur, ást, heiðarleiki, vinátta, hrós, gleði og þið vitið hvað ég meina, eru ómetanlegur fjársjóður.

4. Litum inná við og ræktum okkur sjálf, bæði andlega og líkamlega. Gefum okkur tíma til að draga lærdóm og hugsa hlutina til enda. Alltaf má gott bæta og ég er viss um að þegar allt kemur til alls, verðum við sterkari. Já og ekki gleyma að andaSmile

5. Lifum í núinu. Það mun alltaf vera óvissa, það var alveg jafnmikil óvissa fyrir 2 mánuðum síðan og það er nú. Við vorum bara ekki meðvituð um þessa óvissu. Takið eftir því hvað hugsanir verða miklu meira skapandi á svona tímum. Hver dagur býður uppá ný tækifæri og það er svolítið spennandi ef maður lítur þannig á það.


Námskeið í NLP hjá Kára

 

 

 

NLP Practitioner
(Neuro Linguistic Programming)

 

Aðeins kennt einu sinni á ári.

Kennt er m.a.:
- Að vera mótækilegur og læra á auðveldan hátt.
- Að skapa nýtt samskipta mál.
- Að skapa þína eigin framtíð.
- Að stjórna samtölum.
- Að vekja snillinginn í sjálfum sér
- Að leysa upp neikvæðar venjur.
- Að lesa persónuleika fólks.
- Venjur til varanlegs árangurs.

Námskeiðið er haldið:
Helgarnar 26. - 28. sept. og 03. - 05.okt. 2008.
Um er að ræða eitt sjálfstætt námskeið.
Kennt er föstudaga kl.18-22. Laugardaga og sunnudaga kl.9-17.

NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra
tungumál milli hugsana og undirmeðvitundar.

NLP er notað af fólki um allan heim sem
hefur náð frábærum árangri í lífinu.

 

ÉG mæli með þessu námskeiði fyrir þá sem hafa áhuga. Frekari upplýsingar á www.ckari.com

 


Gunni bróðir með tónleika

Upplifun að hlusta á þesssa grúppu, hvet alla til að láta sjá sig!

VoxFox_asamt_gestum_-_Plakat


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband